<$BlogRSDUrl$>

Thursday, September 09, 2004

BACK AGAIN!

Ja hérna... Það er ansi góð vísbending um að maður hafi ekki bloggað lengi þegar maður man ekki einu sinni lykilorðið á síðuna sína. En þið getið samt farið að fagna því ég lýsi þessu bloggfríi mínu því hér með slitið!!!

Það er nóg að gera þessa dagana. Er á fullu í skólanum, boltanum, vinnunni og svo erum við Gunni Valur djúpt sokknir í það að semja skemmtiatriði fyrir margrómaða uppskeruhátíð okkar Fjölnismanna. Maður er liggur við farinn að bíða eftir þessu kvöldi því það er ætíð líf og fjör þar sem við Fjölnismenn komum saman. Uppskeruhátíðin í fyrra var náttúrulega snilld og þó svo að þessi yrði helmingi verri þá yrði hún samt góð. Sá grunur læðist þó að mér að allt verði toppað frá því í fyrra, að minnsta kosti lofum við enn betri skemmtiatriðum í ár! Því vil ég hvetja alla til að mæta í skotheldum vestum því það verður allt látið flakka og þá meina ég ALLT!

Annars ætla ég að segja þetta gott í dag, fínt að byrja rólega. Ég smelli svo aftur inn föstu liðunum á morgun s.s. tvíförum, myndbandi vikunnar, fola vikunnar og fleiru, eitthvað sem ég ætlaði að gera fyrir 4 mánuðum síðan.
Stay tuned
Da Rú out.......

This page is powered by Blogger. Isn't yours?