<$BlogRSDUrl$>

Monday, October 24, 2005

Just another manic monday!

Jæja loksins koma þessar partý myndir. Því miður var maður frekar slakur á cameruni og því náðust ekki myndir af næstum því öllum. Reyndar var svo ákveðinn ritskoðun í gangi því ég taldi ansi hreint margar myndir ekki hæfar til birtingar. Svona er það þegar Reynir nokkur Hjálmarsson kemst í myndavélina manns!!!

Hérna eru partýmyndirnar!!!!

Fyrst ég er loksins búinn að skella inn myndum þá ætla ég að skella inn fleiri myndum hér næstu daga eins og frá versló, utanlandsferðum, æfingaferðum og fleira. Svo ætla ég að vera með ákveðinn lið á föstudögum sem heitir "Blast from the past" því þar sem ég á svo flottann skanna þá verður öllum gömlu myndunum skellt inn. Sama hversu krassandi þær eru....

Og hey já takk fyrir öll símtölin og sms-iná afmælinu mínu um daginn. Tók reyndar eftir því að fólk virtist muna eftir því í hrönnum eftir að ég setti það hér inn!!!!

Þar til næst

Dabbi "Monroe" Rú

Thursday, October 20, 2005

Movie stars

Þrusu partý um síðustu helgi. Helvíti sáttur við metnaðinn hjá fólki í búningavali...

Smelli inn myndum síðar í dag, frekar góðar margar hverjar en þó sumar ekki nethæfar :) Bæti inn link hér til hliðar og bæti við þessa færslu þegar þetta er klappað og klárt.

stay tuned

Dabbi "Monroe" Rú

P.s. Vel svo nettustu búningana af þessu tilefni.....

Sunday, October 09, 2005

Afmælisbarn dagsins!

Úffffffff mér líst ekkert á hvað tíminn líður hratt. Litli gaurinn minn sem mér finnst eins og hafi fæðst í gær orðinn 6 og hálfs mánaða og ég sjálfur 27 ára!!!!
Vá hvað þetta flýgur áfram..............

This page is powered by Blogger. Isn't yours?